Lev Trotskíj
Sovésk-úkraínskur byltingarmaður (1879-1940) / From Wikipedia, the free encyclopedia
Lev Trotskíj (rússneska: Лев Давидович Тро́цкийⓘ, Lev Davídovítsj Trotskíj) upphaflega nefndur Lev Davídovítsj Bronstein (rússneska: Лев Давидович Бронште́йн) (7. nóvember 1879 – 21. ágúst, 1940), var úkraínskur bolsévíki, byltingarmaður og marxískur kenningasmiður af gyðingaættum. Hann var áhrifamikill stjórnmálamaður á fyrstu árum Sovétríkjanna, fyrst sem utanríkisráðherra í sovésku ráðstjórninni og síðan sem stofnandi og herstjóri Rauða hersins og hermálaráðherra.
Lev Trotskíj Лев Троцкий | |
---|---|
Þjóðfulltrúi hernaðar- og flotamála í Sovétríkjunum | |
Í embætti 13. mars 1918 – 6. janúar 1925 | |
Forsætisráðherra | Vladímír Lenín Aleksej Rykov |
Forveri | Níkolaj Povojskíj |
Eftirmaður | Míkhaíl Frúnze |
Þjóðfulltrúi utanríkismála í rússneska sovétlýðveldinu | |
Í embætti 8. nóvember 1917 – 13. mars 1918 | |
Forsætisráðherra | Vladímír Lenín |
Forveri | Míkhaíl Terestsjenko |
Eftirmaður | Georgíj Tsjítsjerín |
Persónulegar upplýsingar | |
Fæddur | 7. nóvember 1879 Janovka, Rússaveldi (nú Úkraínu) |
Látinn | 21. ágúst 1940 (60 ára) Mexíkóborg, Mexíkó |
Dánarorsök | Myrtur |
Þjóðerni | Sovéskur (áður Úkraínskur) |
Stjórnmálaflokkur | Kommúnistaflokkur Sovétríkjanna |
Maki | Aleksandra Sokolovskaja (g. 1899; skilin 1902) Natalía Sedova (g. 1903) |
Börn | Zinaida Volkova, Nina Nevelson, Lev Sedov, Sergei Sedov |
Háskóli | Háskólinn í Odessa |
Undirskrift |
Eftir að hafa leitt hina misheppnuðu Vinstriandstöðu við valdatöku Stalíns og aukið skrifræði í Sovétríkjunum á 3. áratugnum var hann rekinn úr sovéska kommúnistaflokknum og rekinn úr landi við upphaf Hreinsananna miklu. Í útlegðinni reyndi hann að stjórna sósíalísku andófi gegn Sovétstjórninni, safnaði fylgismönnum (sem eru kenndir við hann og kallaðir trotskíistar) en hafði ekki erindi sem erfiði. Hann var loks myrtur af útsendara Stalíns á heimili sínu, sem var í næsta nágreinni við heimili vinkonu hans og ástkonu, listakonunnar Fridu Kahlo, í Mexíkóborg árið 1940.