Lönd eftir landsframleiðslu á mann (nafnvirði)
From Wikipedia, the free encyclopedia
Lönd eftir landsframleiðslu á mann (nafnvirði) er listi yfir lönd eftir vergri landsframleiðslu, eða verðgildi allrar vöru og þjónustu sem framleidd var í landinu á tilteknu ári, deilt með miðársgildi fólksfjölda sama ár. Þessar tölur taka ekki tillit til ólíks verðlags í mismunandi löndum og niðurstaðan getur verið mjög breytileg frá einu ári til annars eftir sveiflum í gengi gjaldmiðils viðkomandi lands. Slíkar sveiflur geta valdið því að sæti lands á listanum getur breyst mikið frá einu ári til annars, jafnvel þótt svo til enginn munur sé á lífskjörum íbúanna. Því ætti að nota þessar tölur með varúð.
Samanburður á auðlegð þjóðanna er líka oft framkvæmdur á grundvelli kaupmáttarjöfnuðar (KMJ) til að gera ráð fyrir ólíku verðlagi í löndunum (sjá Lönd eftir landsframleiðslu á mann (KMJ)). Með því að nota kaupmáttarjöfnuð er farið framhjá vandamálinu við gengissveiflur, en sú aðferð hefur líka galla. Kaupmáttarjöfnuð landsframleiðsla endurspeglar ekki verðgildi framleiðslunnar á heimsmarkaði og þarfnast auk þess meiri áætlunar en landsframleiðsla að nafnvirði. Almennt séð er dreifing talna miðað við kaupmáttarjöfnuð minni en ef miðað er við nafnvirði.