Kransæðasjúkdómar
From Wikipedia, the free encyclopedia
Kransæðasjúkdómar eru algengastir hjartasjúkdóma og leiðandi orsök dauðsfalla um heim allan.[1][2][3] Þegar talað er um kransæðasjúkdóma er átt við þrengingar eða stíflur í kransæðum hjartans vegna æðakölkunar eða blóðtappa sem myndast í kjölfar hennar. Æðakölkun er ekki einskorðuð við kransæðar hjartans, heldur er um kerfisbundin og mögulega útbreiddan sjúkdóm að ræða. Æðakölkun getur birst sem sjúkdómur í slagæðum heilans og þá valdið blóðþurrð eða heilablóðfalli, eða sem sjúkdómur í útlægum slagæðum og valdið heltiköstum eða alvarlegri blóðþurrð í útlimum. Sjúkdómar af völdum æðakölkunar geta allir verið til staðar hjá einum og sama sjúklingnum og er meinafræði þeirra sú sama.[4]
Þegar æðakölkun birtist sem kransæðasjúkdómur valda þrengsli eða stíflur í kransæðum takmörkuðu blóðflæði til hjartavöðvans sem leiðir til klínískra einkenna kransæðasjúkdóms.[5]