![cover image](https://wikiwandv2-19431.kxcdn.com/_next/image?url=https://upload.wikimedia.org/wikipedia/commons/thumb/a/a4/Colada_krafla.jpg/640px-Colada_krafla.jpg&w=640&q=50)
Krafla
megineldstöð á Norðurlandi-Eystra / From Wikipedia, the free encyclopedia
Staðreyndir strax
Krafla | |
![]() Kröflusvæðið | |
Hæð | 818 metrar yfir sjávarmáli |
Staðsetning | Suður-Þingeyjarsýsla |
Fjallgarður | Enginn |
Loka
![Thumb image](http://upload.wikimedia.org/wikipedia/commons/thumb/4/42/Krafla_eldst%C3%B6%C3%B0vakerfi_kort.png/640px-Krafla_eldst%C3%B6%C3%B0vakerfi_kort.png)
Krafla er megineldstöð nálægt Mývatni. Hæsti tindur er 818 m. Í henni er sigketill eða askja sem er 10 km í þvermál. Á Kröflusvæðinu er háhitasvæði með leirhverum og gufuhverum, til dæmis við Námafjall. Þar eru um 100 km langar sprungur sem gliðna í eldsumbrotum. Eldgos verða oft á slíkum svæðum.
Fyrir 10 þúsund árum lá ísaldarjökull yfir svæðinu og gat því hraunið ekki runnið burt heldur hlóðust upp móbergshryggir eins og Skógamannafjöll. Árin 1724-29 geisuðu Mývatnseldar. Síðasta gos í Kröflu var 1984 en þá lauk Kröflueldum sem var goshrina sem staðið hafði frá 1975. Frá árinu 1975 hefur jarðhiti Kröflu verið notaður í 60 MW jarðvarmavirkjun, Kröflustöð.