![cover image](https://wikiwandv2-19431.kxcdn.com/_next/image?url=https://upload.wikimedia.org/wikipedia/commons/thumb/3/34/H%25C4%25B1d%25C4%25B1rellez_in_Crimea_11.jpg/640px-H%25C4%25B1d%25C4%25B1rellez_in_Crimea_11.jpg&w=640&q=50)
Krímtatarar
From Wikipedia, the free encyclopedia
Krímtatarar (krímtataríska: къырымтатарлар) eða Krímverjar (krímtataríska: къырымлылар) eru tyrkískur þjóðflokkur sem upprunninn er á Krímskaga í Úkraínu. Úkraínsk stjórnvöld viðurkenna Krímtatara sem frumbyggjaþjóð Krímskaga.
![Thumb image](http://upload.wikimedia.org/wikipedia/commons/thumb/3/34/H%C4%B1d%C4%B1rellez_in_Crimea_11.jpg/640px-H%C4%B1d%C4%B1rellez_in_Crimea_11.jpg)
![Thumb image](http://upload.wikimedia.org/wikipedia/commons/thumb/0/08/Flag_of_the_Crimean_Tatar_people.svg/640px-Flag_of_the_Crimean_Tatar_people.svg.png)
Krímtatarar tala krímtatarísku að móðurmáli og aðhyllast flestir súnní-íslamstrú. Þjóðin er jafnan flokkuð með öðrum Tataraþjóðum en Krímtatarar eru þó aðeins fjarskyldir þeim og deilt hefur verið um hvort yfirhöfuð sé rétt að kalla þá Tatara.