Konungar í Dyflinni réðu borginni Dyflinni á Írlandi og næsta nágrenni hennar (Dyflinnarhéraði) frá því um 840.
Konungdæmið var stofnað um 840 af norskum og dönskum víkingum, sem stunduðu þar verslun og höfðu þar bækistöð í hernaði sínum á Bretlandseyjum. Um skeið réðu þeir einnig yfir Jórvík og Mön.
Eflaust hefur sterkra írskra áhrifa gætt í borginni, einkum eftir 1036. Um 1052 náðu Írar yfirráðum yfir Dyflinni, undir forystu konunganna í Leinster. Síðar komust norrænir konungar aftur til valda þar, og var sá síðasti drepinn þegar Normannar réðust inn í Írland um 1171. Þá leið norræna konungdæmið undir lok. Samfélagið í Dyflinni bjó þó við talsverða sérstöðu nokkrum kynslóðum lengur, vegna þeirra róta sem það átti í norrænni menningu.
Vegna brotakenndra heimilda er erfitt að taka saman heildstætt yfirlit yfir konunga í Dyflinni, og eru því mörg vafaatriði í eftirfarandi lista.
Konungar til 902
839 – 845: Þorgestur 1. eða Þorgísl 1. (Turgesius)
845 – 853:???
853 – 871: Ólafur hvíti (írska: Amlaíb Conung) samstjórn þriggja konunga
Dyflinni var hertekin af írsku konungunum Mael Finnia mac Flannacán í Brega og Cerball mac Muiricán konungi í Leinster, og yfirgáfu norrænir menn borgina að mestu frá 902 til 917.