From Wikipedia, the free encyclopedia
„Komdu inn í kofann minn“ er kvæði sem þjóðskáld Davíð Stefánsson frá Fagraskógi birti í tímaritinu Lögbergi árið 1929 undir heitinu „Komdu inn“. Það varð síðar vinsælt en í styttri útgáfu, sem sönglag á Íslandi við tónlist ungverska tónskáldsins Emmerich Kálmán.
Í upprunalega kvæðinu fullyrðir þjóðskáldið að sá iðrist aldrei sem komi og verji nótt með sér. Skáldið segist glaður muni gefa allt það gull sem hann á. Meira að segja „...róðukross úr rauðavið, sem rak á Galmarsströnd.“ Betra verður vart boðið. Galmarsströnd var þjóðskáldinu kær, enda við Fagraskóg uppeldistöðvar hans. Galmarsströnd liggur nær miðjum Eyjafirði að vestanverðu. Þar hefur lengi verið þéttbýlt, enda ströndin grasgefin og gjöfull sjór á aðra hlið en há fjöll á hina með góða af rétt.
Hið „íslenzka höfuðból“ sem Davíð nefnir er án efa bærinn hans Fagraskógur.
Í nútímasöngútgáfu kvæðisins hefur einnig endingu kvæðisins gjarnan verið breytt: Í stað „Ég gleymdi einni gjöfinni, og gettu, hver hún er,“ er komið „Ég gleymdi einni gjöfinni. Ég gleymdi sjálfum mér.“
Lagið sem kvæðið er sungið við er eftir ungverska tónskáldið og gyðinginn Emmerich Kálmán (24. október 1882 – 30. október 1953). Hann varð þekktur á að semja óperettur. Fæddur sem Imre Koppstein í bænum Siófok á suðurströnd Balatonvatns í Ungverjalandi (þá Austuríska Ungverska Keisaradæmisins.)
Lagið er fengið úr óperettunni „Sardasfurstynjunni“ (Die Csárdásfürstin á þýsku eða A Csárdáskirálynő á ungversku hefur verið þýtt á ensku sem „The Riviera Girl“ eða „The Gipsy Princess“). Þaðp er óperetta í þremur hlutum sem frumflutt var í Vínarborg í Johann Strauss leikhúsinu þann 17. nóvember 1915. Óperettan er þekktasta verk Kálmáns.
Sögusvið óperettunnar er hnignandi aðalsveldi Búdapest og Vínarborgar skömmu fyrir fyrri heimsstyrjöldina. Sígaunastúlkan Silva Varescu tónlistarkona er að leggja upp í langferð til Ameríku. Þrír kunningjar af aðalsættum þeir, Edwin, Feri og Boni vilja að hún fari hvergi. Edwin, óvitandi að foreldrar hans hafa nú þegar ákveðið honum hjónaband í Vín, vill giftast Silvu. Síðan taka ástarmálin að flækjast. Síðan kemur í ljós að móðir Edwin er einnig fyrrum kabarettstjarna. Að lokum flýja þau stigvaxandi stríðsátök og fara til Ameríku.
Óperettan Sardasfurstynjan, eftir Emmerich Kálmán var flutt í Íslensku óperunni í febrúar 1993, undir leikstjórn Kjartans Ragnarssonar. Hljómsveitarstjóri var Páll P. Pálsson.
Kvæðið við lag Emmerich Kálmán hefur notið mikilla vinsælda. Eftirtaldir hafa sungið kvæðið inn á plötur eða hljómdiska.
Seamless Wikipedia browsing. On steroids.
Every time you click a link to Wikipedia, Wiktionary or Wikiquote in your browser's search results, it will show the modern Wikiwand interface.
Wikiwand extension is a five stars, simple, with minimum permission required to keep your browsing private, safe and transparent.