![cover image](https://wikiwandv2-19431.kxcdn.com/_next/image?url=https://upload.wikimedia.org/wikipedia/commons/thumb/e/eb/Iceland_sat_cleaned.png/640px-Iceland_sat_cleaned.png&w=640&q=50)
Knarrareyri
From Wikipedia, the free encyclopedia
Knarrareyri eða Eyri er eyðibýli austast á Flateyjardal í Suður-Þingeyjarsýslu. Á jörðinni stendur rúst bæjarins þar sem bóndinn Árni Tómasson bjó í upphafi 20. aldar en hann hlóð fjárhús úr sjávargrjóti og tálgaði raftana með glerbroti, að því er sagt er. Landbrot á Flateyjardal hefur valdið því að fjárhúsin eru nú fallin.
![Thumb image](http://upload.wikimedia.org/wikipedia/commons/thumb/6/6e/Knarrareyri.jpg/640px-Knarrareyri.jpg)
Knarrareyri er kannski þekktust fyrir að vera fæðingarstaður Finnboga ramma, sonar Ásbjarnar dettiáss, sem þar var bóndi á tíundu öld. Kemur bærinn talsvert við sögu í Finnboga sögu.