![cover image](https://wikiwandv2-19431.kxcdn.com/_next/image?url=https://upload.wikimedia.org/wikipedia/commons/thumb/1/1e/Katr%25C3%25ADn_Jakobsd%25C3%25B3ttir_in_August_2023.jpg/640px-Katr%25C3%25ADn_Jakobsd%25C3%25B3ttir_in_August_2023.jpg&w=640&q=50)
Katrín Jakobsdóttir
fyrrum forsætisráðherra Íslands / From Wikipedia, the free encyclopedia
Katrín Jakobsdóttir (fædd 1. febrúar 1976) er fyrrum forsætisráðherra Íslands. Hún var formaður Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs frá 2013 til 2024. Hún starfaði sem mennta- og menningarmálaráðherra frá 2009 til 2013 og sem forsætisráðherra frá 2017 til 2024. Hún er önnur konan sem gegnt hefur embætti forsætisráðherra Íslands. Katrín var oddviti Vinstri græns í Reykjavíkurkjördæmi norður. Katrín sagði af sér sem forsætisráðherra og þingmennsku árið 2024 og bauð sig fram í embætti forseta Íslands fyrir forsetakosningarnar 2024 og lenti í öðru sæti með 25,1% atkvæða.
Katrín Jakobsdóttir | |
![]() Katrín árið 2023 | |
Fæðingardagur: | 1. febrúar 1976 (1976-02-01) (48 ára) |
---|---|
Fæðingarstaður: | Reykjavík |
Flokkur: | ![]() |
Þingsetutímabil | |
2007-2009 | í Rvk. n. fyrir Vg. |
2009-2013 | í Rvk. n. fyrir Vg. ✽ |
2013-2016 | í Rvk. n. fyrir Vg. |
2016-2017 | í Rvk. n. fyrir Vg. |
2017-2024 | í Rvk. n. fyrir Vg. ✽ |
✽ = stjórnarsinni | |
Embætti | |
2003-2013 | Varaformaður Vinstri grænna |
2009-2013 | Mennta- og menningarmálaráðherra |
2013-2024 | Formaður Vinstri grænna |
2017-2024 | Forsætisráðherra Íslands |
Tenglar | |
Æviágrip á vef Alþingis – Vefsíða |
Katrín var fyrir forsætisráðherratíð sína einn vinsælasti einstaklingur í íslenskum stjórnmálum. Samkvæmt nokkrum skoðaðakönnunum vildu flestir Íslendingar Katrínu sem forsætisráðherra.[1][2] Könnun árið 2015 leiddi í ljós að Katrín naut mests trausts (59,2% þátttakenda) alls forystufólks í íslenskum stjórnmálum, þar með taldir forsetar.[3]