![cover image](https://wikiwandv2-19431.kxcdn.com/_next/image?url=https://upload.wikimedia.org/wikipedia/commons/thumb/7/70/S%25C3%25A9bastien_Bourdons-Karl_X_Gustav.jpg/640px-S%25C3%25A9bastien_Bourdons-Karl_X_Gustav.jpg&w=640&q=50)
Karl 10. Gústaf
From Wikipedia, the free encyclopedia
Karl 10. Gústaf (8. nóvember 1622 – 13. febrúar 1660) var konungur Svíþjóðar frá 1654 til dauðadags. Hann var sonur Jóhanns Casimir, greifa af Pfalz og Katrínar Svíaprinsessu, dóttur Karls 9.. Kristín Svíadrottning fékk hann samþykktan sem arftaka sinn árið 1649 og hann tók við embætti þegar hún sagði af sér fimm árum síðar. Hann giftist 1654 Heiðveigu Leónóru af Holstein-Gottorp og átti með henni ríkisarfann Karl 11.. Hjónaband þeirra var bandalag milli sænsku krúnunnar og hertogans af Holtsetalandi gegn Danmörku.
![Thumb image](http://upload.wikimedia.org/wikipedia/commons/thumb/7/70/S%C3%A9bastien_Bourdons-Karl_X_Gustav.jpg/640px-S%C3%A9bastien_Bourdons-Karl_X_Gustav.jpg)