Körfuknattleiksfélag ÍBV
From Wikipedia, the free encyclopedia
Félagið varð til út frá starfsemi Týs
Koma erlends þjálfara til Eyja árið 1947 markaði upphaf nýrrar íþróttar undir merki Týs. Þjálfarinn Eðvald Mikson, kom alla leið frá Eistlandi til þess að kenna Eyjaskeggjum íþróttir. Hin nýja íþrótt var körfubolti.
Síðar var nafninu breytt í ÍV og keppti í fjölda ára undir þeim merkjum. Starfsemi ÍV lagðist niður um miðjan 9 áratugin, en var endurvakin með miklum krafti að nýju árið 1995. Liðið hóf síðan að spila undir merkjum ÍBV árið 2006 þegar nafni félagsins var breytt úr Íþróttafélagi Vestmannaeyja í Körfuknattleiksfélag ÍBV.
Mikill uppgangur hefur verið í körfunni undanfarin ár, það hefur mátt sjá á góðum árangri yngri flokka félagsins undanfarin ár.
- Fyrir nánari upplýsingar um félagið sjálft sjá Íþróttabandalag Vestmannaeyja
Staðreyndir strax
Íþróttabandalag Vestmannaeyja | |
Deild | 3. deild karla |
Stofnað | 1995 |
Saga | 1947- |
Völlur | Gamli salurinn |
Staðsetning | Vestmannaeyjar |
Litir liðs | Hvítur |
Eigandi | ÍBV |
Formaður | |
Þjálfari | Haraldur Jón Jóhannesson |
Titlar | 1 deildarmeistaratitill |
Heimasíða |
Loka