Kómorur
From Wikipedia, the free encyclopedia
Kómorur eða Kómoreyjar (arabíska: جزر القمر, Juzur al-Qumur / Qamar), opinberlega Kómorsambandið (kómorska: Udzima wa Komori, franska: Union des Comores, arabíska: الاتحاد القمري al-Ittiḥād al-Qumurī / Qamarī), eru sambandsríki þriggja eyja í Indlandshafi undan strönd austanverðrar Afríku Eyjarnar eru nyrst í Mósambíksundi á milli norðurodda Madagaskar og Mósambík. Landhelgi Kómoreyja liggur að landhelgi Madagaskar og frönsku eyjunnar Mayotte í suðaustri, Tansaníu í norðvestri, Mósambík í vestri og Seychelles-eyja í norðaustri. Höfuðborg og stærsta borg eyjanna er Móróní. Meirihluti íbúa aðhyllist opinber trúarbrögð landsins sem eru súnní íslam. Kómoreyjar eru eini aðili Arababandalagsins sem er að öllu leyti á suðurhveli jarðar. Á Kómoreyjum eru þrjú opinber tungumál: arabíska, kómorska og franska.
Kómorsambandið | |
Union des Comores Udzima wa Komori الاتحاد القمر | |
Fáni | Skjaldarmerki |
Kjörorð: Unité – Solidarité – Développement (franska: Eining, samstaða, framþróun) | |
Þjóðsöngur: Udzima wa ya Masiwa | |
Höfuðborg | Móróní |
Opinbert tungumál | shikomori, arabíska og franska |
Stjórnarfar | Sambandslýðveldi |
Forseti | Azali Assoumani |
Sjálfstæði | |
• frá Frakklandi | 6. júlí 1975 |
Flatarmál • Samtals • Vatn (%) |
171. sæti 1.861 km² 0 |
Mannfjöldi • Samtals (2018) • Þéttleiki byggðar |
160. sæti 850.688 1.183,6/km² |
VLF (KMJ) | áætl. 2019 |
• Samtals | 2,446 millj. dala (178. sæti) |
• Á mann | 2.799 dalir (177. sæti) |
VÞL (2018) | 0.538 (156. sæti) |
Gjaldmiðill | kómorískur franki |
Tímabelti | UTC+3 |
Þjóðarlén | .km |
Landsnúmer | +269 |
Eyjarnar eru þrjár eldfjallaeyjar; Ngazidja (Grande Comore), þar sem höfuðborgin Móróní stendur, Mwali (Moheli) og Nzwani (Anjouan). Eyjan Mayotte er hluti af eyjaklasanum og gera Kómoreyjar tilkall til hennar, en íbúar Mayotte hafa kosið að vera áfram hluti Frakklands. Landið er það þriðja minnsta í Afríku. Menning og saga eyjanna er fjölbreytt þar sem saman koma áhrif frá ólíkum menningarsvæðum. Kómoreyjar eru eina Afríkuríkið sem er í senn aðili að Afríkusambandinu, Alþjóðasamtökum frönskumælandi fólks, Samtökum um samvinnu íslamskra ríkja, Arababandalaginu og Indlandshafsráðinu.
Eyjarnar voru fyrst byggðar bantúmælandi fólki frá Austur-Afríku, Aröbum og Ástrónesum. Þær urðu hluti af Franska nýlenduveldinu á 19. öld og fengu sjálfstæði árið 1975. Frá sjálfstæði hafa eyjarnar gengið gegnum yfir 20 valdaránstilraunir og margir þjóðhöfðingjar verið myrtir. Auk pólitísks óstöðugleika búa íbúar eyjanna við mesta tekjuójöfnuð í heimi, með Gini-stuðul yfir 60%, og eru auk þess í neðsta fjórðungi vísitölu um þróun lífsgæða. Árið 2008 lifði yfir helmingur íbúa undir alþjóðlegum fátæktarmörkum, eða 1,25$ á dag. Margir íbúar Kómoreyja sækjast eftir því að flytja til franska héraðsins Mayotte þar sem ríkir mun meiri velmegun.