From Wikipedia, the free encyclopedia
Jón frá Pálmholti (fæddur Kjartansson 25. maí 1930 í Pálmholti, Arnarneshreppi, í Eyjafirði, dáinn á heimili sínu 13. desember 2004) var rithöfundur og þekktur baráttumaður fyrir bættum hag efnalítils fólks. Eftir hann liggja fjölmörg ritverk, ljóðabækur, skáldsögur, ævisögur, þýðingar, auk fjölda blaða- og tímaritagreina.
Jón Kjartansson fæddist 25. maí árið 1930 í Pálmholti, Arnarneshreppi, í Eyjafirði. Hann var sonur hjónanna Kjartans Ólafssonar bónda og Þuríðar Jónsdóttur húsmóður. Jón lauk gagnfræðaprófi frá héraðsskólanum á Laugum 1954, stundaði nám við Kennaraskóla Íslands 1955-1957 og stundaði einnig nám í Námsflokkum Reykjavíkur og Félagsmálaskóla alþýðu.
Jón var barnakennari á árunum 1955-1957. Samhliða ritstörfum vann hann ýmis störf á árunum 1957-1979, m.a. gullsmíði, steinsmíði hjá Steinsmiðju Sigurðar Helgasonar. Hann var starfmaður Félagsmálastofnunar Reykjavíkurborgar 1979-1989.
Jón átti frumkvæði að stofnun Leigjendasamtakanna árið 1978 og var formaður þeirra á árunum 1978-1985 og 1989-2001. Hann var aðaldriffjöður þeirra samtaka og mjög þekktur fyrir skrif sín í þágu þeirra. Hann vann kauplaust fullt starf hjá samtökunum um árabil.
Jón var einn stofnfélögum Rithöfundasambands Íslands og sat hann þar í stjórn 1962-1963 og 1971-1973.
Árið 1972 var Jón einn stofnenda Ásatrúnarfélagsins og sat hann í stjórn félagsins á árunum 1979-1988.
Eftir Jón liggur fjöldi blaðagreina enda talinn á sínum tíma einn ötulasti og einlægasti málsvari láglaunafólks á Íslandi.
Jón giftist Ingibjörgu Gunnþórsdóttur en þau skildu. Þau eignuðust tvö börn en auk þess eignaðist Jón eitt barn með Steinunni Ósk Magnúsdóttur.
Helstu ljóðabækur Jóns frá Pálmholti eru:
Önnur rit hans eru:
Seamless Wikipedia browsing. On steroids.
Every time you click a link to Wikipedia, Wiktionary or Wikiquote in your browser's search results, it will show the modern Wikiwand interface.
Wikiwand extension is a five stars, simple, with minimum permission required to keep your browsing private, safe and transparent.