Joseph Wirth
Kanslari Þýskalands (1879-1956) / From Wikipedia, the free encyclopedia
Karl Joseph Wirth (6. september 1879 – 3. janúar 1956) var þýskur stjórnmálamaður og kanslari Þýskalands í 585 daga (1921–1922) á árum Weimar-lýðveldisins. Wirth reyndi að virða skilmálana sem Þjóðverjar höfðu fallist á í Versalasamningnum og sýna bandamönnum þannig fram á að þeir væru óraunhæfir. Ásamt utanríkisráðherra sínum, Walther Rathenau, reyndi hann að binda enda á einangrun Þjóðverja á alþjóðasenunni með því að skrifa undir Rapallo-sáttmálann árið 1922.
Staðreyndir strax Kanslari Þýskalands, Forseti ...
Joseph Wirth | |
---|---|
Kanslari Þýskalands | |
Í embætti 10. maí 1921 – 14. nóvember 1922 | |
Forseti | Friedrich Ebert |
Forveri | Constantin Fehrenbach |
Eftirmaður | Wilhelm Cuno |
Persónulegar upplýsingar | |
Fæddur | 6. september 1879 Freiburg, Þýskalandi |
Látinn | 3. janúar 1956 (76 ára) Freiburg, Vestur-Þýskalandi |
Stjórnmálaflokkur | Miðflokkurinn |
Trúarbrögð | Kaþólskur |
Háskóli | Háskólinn í Freiburg |
Loka
Wirth fór í sjálfskipaða útlegð eftir að nasistar komust til valda árið 1933.