John Chadwick
From Wikipedia, the free encyclopedia
John Chadwick (21. maí 1920 – 24. nóvember 1998) var enskur fornfræðingur, textafræðingur og málvísindamaður sem er einkum frægur fyrir að hafa ásamt Michael Ventris ráðið línuletur B á árunum 1951-1953. Hann kenndi fornfræði við Cambridge-háskóla frá 1952 og hóf það sama ár samvinnu við Ventris um að ráða línuletur B. Afrakstur rannsókna þeirra birtist í bók þeirra Documents in Mycenean Greek árið 1956. Chadwick samdi aðgengilega og vinsæla bók um samvinnu þeirra Ventris árið 1958, The Decipherment of Linear B. Hann settist í helgan stein árið 1984.