![cover image](https://wikiwandv2-19431.kxcdn.com/_next/image?url=https://upload.wikimedia.org/wikipedia/commons/thumb/8/83/Yevgeny_Prigozhin_%252813-06-2023%2529.jpg/640px-Yevgeny_Prigozhin_%252813-06-2023%2529.jpg&w=640&q=50)
Jevgeníj Prígozhín
Rússneskur viðskiptamaður og eigandi Wagner-hópsins (1961-2023) / From Wikipedia, the free encyclopedia
Jevgeníj Víktorovítsj Prígozhín (rússneska: Евгений Викторович Пригожин; f. 1. júní 1961, d. 23. ágúst 2023) var rússneskur viðskiptamaður og olígarki sem var lengi einn nánasti bandamaður Vladímírs Pútín, forseta Rússlands. Prígozhín var gjarnan kallaður „kokkur Pútíns“ þar sem hann rak fjölda lúxusveitingahúsa sem elduðu og héldu viðburði fyrir rússnesk stjórnvöld.
Jevgeníj Prígozhín Евгений Пригожин | |
---|---|
![]() Jevgeníj Prígozhín árið 2023. | |
Fæddur | 1. júní 1961(1961-06-01) |
Dáinn | 23. ágúst 2023 (62 ára) |
Störf | Athafnamaður, veitingahúsarekandi, málaliði |
Þekktur fyrir | Að eiga Wagner-hópinn |
Maki | Ljúbov Valentínovna Prígozhína |
Börn | 2 |
Prígozhín var stofnandi og eigandi Wagner-hópsins, málaliðasamtaka sem ganga erinda Rússlandsstjórnar í ýmsum erlendum hernaðardeilum. Hann var jafnframt bendlaður við Netrannsóknarstofnunina (rússneska: Агентство интернет-исследований, umritað: Agentstvo ínternet-íssledovaníj), sem var sökuð um að reyna að hafa áhrif á kosningar í Bandaríkjunum með rekstri nettröllabúa.
Prígozhín lést þann 23. ágúst 2023 þegar flugvél hans brotlenti í Rússlandi. Dauða hans bar að tveimur mánuðum eftir að hann leiddi misheppnaða uppreisn gegn stjórn Pútíns.