![cover image](https://wikiwandv2-19431.kxcdn.com/_next/image?url=https://upload.wikimedia.org/wikipedia/commons/thumb/f/fd/Baby_Doc_%2528centr%25C3%25A9e%2529.jpg/640px-Baby_Doc_%2528centr%25C3%25A9e%2529.jpg&w=640&q=50)
Jean-Claude Duvalier
41. forseti Haítí (1951-2014) / From Wikipedia, the free encyclopedia
Jean-Claude Duvalier (3. júlí 1951 – 4. október 2014), kallaður Baby Doc eða Bébé Doc, var haítískur stjórnmálamaður. Hann réð yfir Haítí sem forseti og einræðisherra landsins frá dauða föður síns, forsetans François „Papa Doc“ Duvalier, árið 1971 þar til honum var steypt af stóli árið 1986. Duvalier var aðeins nítján ára gamall þegar hann tók við embætti forseta og var á þeim tíma yngsti þjóðhöfðingi í heimi. Valdatíð Duvaliers einkenndist af bæði spillingu og mannréttindabrotum og stjórn hans er jafnan talin til þjófræðisstjórna.
Jean-Claude Duvalier | |
---|---|
![]() Jean-Claude Duvalier árið 2011. | |
Forseti Haítí | |
Í embætti 22. apríl 1971 – 7. febrúar 1986 | |
Forveri | François Duvalier |
Eftirmaður | Henri Namphy |
Persónulegar upplýsingar | |
Fæddur | 3. júlí 1951 Port-au-Prince, Haítí |
Látinn | 4. október 2014 (63 ára) Port-au-Prince, Haítí |
Þjóðerni | Haítískur |
Stjórnmálaflokkur | Þjóðeiningarflokkurinn |
Maki | Michèle Bennett (g. 1980–1990) |
Börn | 2 |
Foreldrar | François Duvalier og Simone Duvalier |
Háskóli | Ríkisháskóli Haítí |
Starf | Stjórnmálamaður |
Eftir að honum var steypt af stóli dvaldist Duvalier í um 25 ár í útlegð frá heimalandi sínu í París. Hann sneri óvænt aftur til Haítí árið 2011 og var í kjölfarið handtekinn og ákærður fyrir spillingu á forsetatíð sinni. Duvalier lést árið 2014 áður en búið var að rétta yfir honum.