![cover image](https://wikiwandv2-19431.kxcdn.com/_next/image?url=https://upload.wikimedia.org/wikipedia/commons/thumb/4/42/Colbert-5.jpg/640px-Colbert-5.jpg&w=640&q=50)
Jean-Baptiste Colbert
From Wikipedia, the free encyclopedia
Jean-Baptiste Colbert (29. ágúst 1619 – 6. september 1683) var fjármálaráðherra Loðvíks 14. Frakkakonungs. Hann er talinn vera áhrifamesti merkanílistinn og jafnframt aðalfrumkvöðull þeirrar stefnu. Colbert efldi miðstýringu í efnahagsmálum og kom á opinberu efnahagseftirliti. Einnig endurbætti hann skattakerfið. Hann styrkti handiðnað, afnam tollamúra innanlands, samræmdi mynt, mál og vog og bætti samgöngur. Í hans tíð varð Frakkland eitt mesta flotaveldi heims og eignaðist ýmsar nýlendur í Ameríku. Stefna hans olli straumhvörfum í Evrópu en óhófsemi hirðarinnar í Frakklandi dró mjög úr árangri af henni heima fyrir.
![Thumb image](http://upload.wikimedia.org/wikipedia/commons/thumb/4/42/Colbert-5.jpg/640px-Colbert-5.jpg)