Jarðskjálftakvarðar
From Wikipedia, the free encyclopedia
„Richter“ vísar hingað. Fyrir aðra notkun á orðinu, sjá Richter (aðgreining).
Jarðskjálftakvarðar eru notaðir til að mæla styrk jarðskjálfta. Mælingin byggir vanalega á jarðskjálftabylgjum sem jarðskjálftamælir nemur. Ekki er alltaf hægt að nota sama kvarða fyrir alla skjálfta þar sem mismunandi er hvaða upplýsingar er hægt að nema og tilgangur mælingarinnar getur verið breytilegur.