John L. Austin
From Wikipedia, the free encyclopedia
John Langshaw Austin (28. mars 1911 – 8. febrúar 1960) var breskur heimspekingur, sem fékkst einkum við málspeki og átti mestan þátt í að þróa kenninguna um málgjörðir.
Staðreyndir strax Vestræn heimspeki Heimspeki 20. aldar, Nafn: ...
Vestræn heimspeki Heimspeki 20. aldar | |
---|---|
Nafn: | John Langshaw Austin |
Fæddur: | 28. mars 1911 |
Látinn: | 8. febrúar 1960 (48 ára) |
Skóli/hefð: | Rökgreiningarheimspeki, Oxford heimspeki |
Helstu ritverk: | How to Do Things with Words, Philosophical Papers, Sense and sensibilia |
Helstu viðfangsefni: | málspeki, hugspeki, siðfræði |
Markverðar hugmyndir: | málgjörðir, íbyggni |
Áhrifavaldar: | G.E. Moore, Bertrand Russell, Gilbert Ryle |
Hafði áhrif á: | John Searle, R.M. Hare |
Loka
Hann fæddist í Lancaster og var menntaður í Balliol College í Oxford.
Hann starfaði í MI6 leyniþjónustunni í síðari heimsstyrjöldinni en að því loknu tók Austin við stöðu prófessors White í siðfræði við University of Oxford. Þáttur hans í sögu breskrar málspeki er afar mikilvægur. Ásamt Ludwig Wittgenstein lagði hann ríka áherslu á að notkun orða skyldi rannsökuð til að varpa ljósi á merkingarhugtakið.