Júríj Gagarín
rússneskur geimfari (1934-1968) / From Wikipedia, the free encyclopedia
Júríj Aleksejevítsj Gagarín (rússneska: Юрий Алексеевич Гагарин; 9. mars 1934 – 27. mars 1968) var rússneskur geimfari og hvort tveggja fyrsti maðurinn sem fór út í geiminn 12. apríl 1961 og fyrsti maðurinn til að komast á sporbraut um jörðu.
Júríj Gagarín Юрий Гагарин | |
Júríj í Svíþjóð. | |
Fæddur | Júrí Aleksejevítsj Gagarín 9. mars 1934(1934-03-09) Klúshíno, rússneska sovétlýðveldinu, Sovétríkjunum |
---|---|
Látin(n) | 27. mars 1968 (34 ára) Novosjolovo, rússneska sovétlýðveldinu, Sovétríkjunum Flugslys við æfingu |
Tími í geimnum | 1 klukkustund og 48 mínútur |
Verkefni | Vostok 1 |
Undirskrift |
Hann lærði flug samhliða vélvirkjun og var herflugmaður á orrustuflugvélum. 1960 var hann valinn ásamt 20 öðrum til að taka þátt í Vostok-áætluninni. Eftir strangt þjálfunarferli var hann valinn til að verða fyrsti maðurinn í geimnum. Valið stóð milli hans og German Títov sem varð síðan annar maðurinn í geimnum.
12. apríl 1961 fór Gagarín út í geiminn með Vostok 1.[1] Samkvæmt fjölmiðlum á hann að hafa sagt þegar hann var kominn á braut um jörðu, „Ég sé engan guð hérna uppi.“
Gagarín lést í flugslysi þegar MiG-15 orrustuflugvél sem hann stýrði hrapaði.