Júdó
From Wikipedia, the free encyclopedia
Júdó eða japönsk glíma er bardagaíþrótt sem Japaninn Jigoro Kano setti á stofn árið 1888. Kano byggði Júdó á eldri vopnlausri bardagaaðferð sem heitir jiu jitsu og byggist á gripum og lásum úr glímu. Hann bætti við ströngum reglum sem vörðuðu samskipti íþróttamanna innan æfingarsalar og byggja á japönskum hefðum auk reglna um íþróttina sjálfa. Júdó merkir bóstaflega „hinn mjúki vegur“.