Jósef 2. keisari
From Wikipedia, the free encyclopedia
Jósef 2. (13. mars 1741 – 20. febrúar 1790) var keisari hins Heilaga rómverska ríkis frá 1765 til 1790. Hann var elsti sonur keisaraynjunnar Maríu Teresu og eiginmanns hennar, Frans 1. keisara, og bróðir Maríu Antonettu Frakklandsdrottningar. Jósef var stuðningsmaður upplýsts einveldis og reyndi að koma á ýmsum umbótum í anda Upplýsingarinnar í Heilaga rómverska ríkinu. Sumar af þessum umbótum mættu harðri mótspyrnu meðal aðalsmanna og voru því aldrei framkvæmdar. Jósef er gjarnan talinn ásamt Katrínu miklu og Friðriki mikla sem einn af bestu einvöldum Upplýsingarinnar.[1] Jósef var einnig þekktur listunnandi og var meðal annars velgjörðamaður tónlistarmanna á borð við Wolfgang Amadeus Mozart.
Staðreyndir strax
| ||||
Jósef 2. | ||||
Ríkisár | 18. ágúst 1765 – 20. febrúar 1790 | |||
Skírnarnafn | Josef Benedikt Anton Michel Adam | |||
Fæddur | 13. mars 1741 | |||
Schönbrunn-höll, Vín, Austurríki, Heilaga rómverska ríkinu | ||||
Dáinn | 20. febrúar 1790 (48 ára) | |||
Vín, Austurríki | ||||
Gröf | Keisaragrafhýsinu í Vín | |||
Undirskrift | ||||
Konungsfjölskyldan | ||||
Faðir | Frans 1. | |||
Móðir | María Teresa | |||
Keisaraynja | Ísabella af Parma (g. 1760; d. 1763) María Jósefa af Bæjaralandi (g. 1765; d. 1767) | |||
Börn | María Teresa María Kristína |
Loka