Jóhann 2. Frakkakonungur
From Wikipedia, the free encyclopedia
Jóhann 2. Frakkakonungur (16. apríl 1319 – 8. apríl 1364), kallaður Jóhann góði (franska: Jean le Bon) var konungur Frakklands frá 1350 til dauðadags. Hann var annar í röð konunga af Valois-ætt. Hann var einnig greifi af Anjou, Maine og Poitiers, hertogi af Normandí frá 1332, hertogi af Akvitaníu frá 1345 og frá 1361 til 1363 hertogi af Búrgund.