![cover image](https://wikiwandv2-19431.kxcdn.com/_next/image?url=https://upload.wikimedia.org/wikipedia/commons/thumb/4/4f/J%25C3%25A1nos_K%25C3%25A1d%25C3%25A1r_%2528fototeca.iiccr.ro%2529.jpg/640px-J%25C3%25A1nos_K%25C3%25A1d%25C3%25A1r_%2528fototeca.iiccr.ro%2529.jpg&w=640&q=50)
János Kádár
Ungverskur kommúnistaleiðtogi (1912-1989) / From Wikipedia, the free encyclopedia
János Kádár (fæddur undir nafninu János József Csermanek; 26. maí 1912 – 6. júlí 1989) var ungverskur stjórnmálamaður og kommúnisti sem var aðalritari Ungverska sósíalíska verkamannaflokksins frá 1956 til 1988 og forsætisráðherra ungverska alþýðulýðveldisins á tveimur tímabilum (1956–1958 og 1961–1965). Kádár var settur í embætti af Sovétmönnum eftir að uppreisninni í Ungverjalandi var hrundið árið 1956. Lengi litu Ungverjar á Kádár sem föðurlandssvikara fyrir að taka afstöðu með innrásarmönnum gegn byltingunni en hann náði þó á valdatíð sinni að vinna sér nokkra alþýðuhylli með umbótum sínum, sem kenndar voru við „gúllaskommúnisma“. Pólitísk arfleifð hans er enn umdeild meðal Ungverja í dag.
Staðreyndir strax Aðalritari Ungverska sósíalíska verkamannaflokksins, Forveri ...
János Kádár | |
---|---|
![]() | |
Aðalritari Ungverska sósíalíska verkamannaflokksins | |
Í embætti 25. október 1956 – 22. maí 1988 | |
Forveri | Ernő Gerő |
Eftirmaður | Károly Grósz |
Forsætisráðherra Ungverjalands | |
Í embætti 4. nóvember 1956 – 28. janúar 1958 | |
Forveri | Imre Nagy |
Eftirmaður | Ferenc Münnich |
Í embætti 13. september 1961 – 30. júní 1965 | |
Forveri | Ferenc Münnich |
Eftirmaður | Gyula Kállai |
Persónulegar upplýsingar | |
Fæddur | 26. maí 1912 Fiume, Austurríki-Ungverjalandi |
Látinn | 6. júlí 1989 (77 ára) Búdapest, Ungverjalandi |
Þjóðerni | Ungverskur |
Stjórnmálaflokkur | Ungverski sósíalíski verkamannaflokkurinn |
Maki | Mária Tamáska (1949–1989) |
Loka