Iðnskólinn í Reykjavík
Framhaldsskóli á Íslandi (1904-2008) / From Wikipedia, the free encyclopedia
Iðnskólinn í Reykjavík var elsti iðnmenntaskóli Reykjavíkur og var hann starfandi frá 1904–2008 þar til hann sameinaðist Fjöltækniskólanum og varð að Tækniskólanum.
Staðreyndir strax Starfandi, Tegund ...
Starfandi | 1904–2008 |
---|---|
Tegund | Ríkisskóli |
Skólastjóri | Baldur Gíslason |
Nemendur | 2148 (árið 2007) |
Nemendafélag | SIR |
Staðsetning | Skólavörðuholt |
Loka
Við hann stunduðu rúmlega 2050 manns nám, um 1550 í dagskóla og 400 í kvöldskóla og í fjarnámi árið 2007. Námsbrautir voru 21 á 7 sviðum: almennu sviði, byggingasviði, hönnunarsviði, rafiðnasviði, sérdeildasviði, tölvusviði og upplýsinga- og margmiðlunarsviði.
Skólinn starfaði eftir áfangakerfi. Námslok miðuðust við að nemendur hafi lokið tilskildum áföngum og einingafjölda eins og tilgreint var (eða 9 alls með undartekningum) í brautarlýsingum skólanámskrár. Skólaárinu var skipt í tvær annir, vorönn og haustönn.