![cover image](https://wikiwandv2-19431.kxcdn.com/_next/image?url=https://upload.wikimedia.org/wikipedia/commons/thumb/2/2a/Inuktitut_dialect_map.png/640px-Inuktitut_dialect_map.png&w=640&q=50)
Inúítar
From Wikipedia, the free encyclopedia
Inúítar (úr inúítamálum Inuit „fólkið“, eintala: Inuk) eru þjóðflokkar frumbyggja Norður-Ameríku sem búa á Norðurslóðum, nánar tiltekið á Grænlandi, í Kanada og í Alaska. Áður fyrr var orðið eskimói oft notað um alla inúíta.
![Thumb image](http://upload.wikimedia.org/wikipedia/commons/thumb/2/2a/Inuktitut_dialect_map.png/640px-Inuktitut_dialect_map.png)
Þjóðflokkar þessir búa á svæðinu allt frá Tjúkta-héraði í Síberíu til Grænlands. Þrátt fyrir að þessir þjóðflokkar hafi búið dreift á þessu víðáttumikla svæði hafa menning þeirra og lifnaðarhættir verið nánast þeir sömu langt fram á 20. öld. Þeir hafa lifað á fiskveiðum og veiðum land- og sjávardýra. Inúítar eru samheiti yfir fleiri þjóðflokka, Inuit og Inuvialut í Kanada, Kalaallit á Grænlandi, Inupiaq og Yupik í Alaska og Yupik í Rússlandi (Síberíu). Í raun eru Yupik ekki Inúítar þar sem þeir eru ekki afkomendur þess fólks sem kennt er við Thule og tala annað tungumál (þó náskylt), þeir vilja þess vegna heldur kalla sig Yupik eða Eskimóa í stað Inúíta.
Kanadísku Inúítarnir búa aðallega í Nunavut (sjálfstjórnarsvæði í Kanada), Nunavik (norðurhluti Quebec) og í Nunatsiavut (í Labrador). Inuvialuit búa aðallega við fitjar Mackenzie fljótsins og á Banks-eyju og hluta af Viktoríu-eyju í Nor'vesturhéruðunum. Inúítar bjuggu áður í Yukon-héraði en nú búa engir þeirra þar. Inupiaq búa á norðurströnd Alaska, en Yupik búa á vesturströnd Alaska og allra austasta hluta Tjúkta-héraðs í Rússlandi.