Ingrida Šimonytė
Forsætisráðherra Litháens / From Wikipedia, the free encyclopedia
Ingrida Šimonytė (f. 15. nóvember 1974) er litáísk stjórnmálakona og hagfræðingur og núverandi forsætisráðherra Litáens. Hún er meðlimur í litáíska Föðurlandsbandalaginu.
Staðreyndir strax Forsætisráðherra Litáens, Forseti ...
Ingrida Šimonytė | |
---|---|
Forsætisráðherra Litáens | |
Núverandi | |
Tók við embætti 11. desember 2020 | |
Forseti | Gitanas Nausėda |
Forveri | Saulius Skvernelis |
Persónulegar upplýsingar | |
Fædd | 15. nóvember 1974 (1974-11-15) (49 ára) Vilníus, litáíska sovétlýðveldinu, Sovétríkjunum |
Þjóðerni | Litáísk |
Stjórnmálaflokkur | Föðurlandsbandalagið |
Háskóli | Háskólinn í Vilníus |
Undirskrift |
Loka
Šimonytė var fjármálaráðherra Litáens frá 2009 til 2012 í annarri ríkisstjórn Andriusar Kubilius. Hún var kjörin á litáíska þingið (Seimas) árið 2016. Árið 2019 gaf hún kost á sér í forsetakosningum Litáens en tapaði í seinni umferð þeirra gegn Gitanas Nausėda. Šimonytė var aftur kjörin á þing árið 2020 og var í kjölfarið útnefnd forsætisráðherra í ríkisstjórn Föðurlandsbandalagsins, Frjálslyndu hreyfingarinnar og Frelsisflokksins.