![cover image](https://wikiwandv2-19431.kxcdn.com/_next/image?url=https://upload.wikimedia.org/wikipedia/commons/thumb/a/a1/Ingiburga_of_Sweden_%2528daughter_of_Hacon%2529_bust_2009_Link%25C3%25B6ping_%25282%2529_crop.jpg/640px-Ingiburga_of_Sweden_%2528daughter_of_Hacon%2529_bust_2009_Link%25C3%25B6ping_%25282%2529_crop.jpg&w=640&q=50)
Ingibjörg Hákonardóttir af Noregi
From Wikipedia, the free encyclopedia
Ingibjörg Hákonardóttir (1301 – 1361) eða Ingibjörg hertogaynja var norsk konungsdóttir sem varð sænsk hertogaynja og átti sæti í bæði norska og sænska ríkisráðinu. Hún var móðir Magnúsar Eiríkssonar smeks. Sumir sagnfræðingar telja að hún hafi í raun verið þjóðhöfðingi Svíþjóðar 1318-1319 og hún hafði mikil áhrif á stjórn Svíþjóðar og Noregs í yfir 40 ár.
![Thumb image](http://upload.wikimedia.org/wikipedia/commons/thumb/a/a1/Ingiburga_of_Sweden_%28daughter_of_Hacon%29_bust_2009_Link%C3%B6ping_%282%29_crop.jpg/640px-Ingiburga_of_Sweden_%28daughter_of_Hacon%29_bust_2009_Link%C3%B6ping_%282%29_crop.jpg)