![cover image](https://wikiwandv2-19431.kxcdn.com/_next/image?url=https://upload.wikimedia.org/wikipedia/commons/thumb/4/47/Imac_2007.png/640px-Imac_2007.png&w=640&q=50)
iMac
Vörulína af "allt-í-einni" borðtölvum frá fyrirtækinu Apple Inc / From Wikipedia, the free encyclopedia
iMac er heimilistölva hönnuð og búin til af Apple. Hún er þekkt fyrir að hafa „allt-í-einu“ hönnun.
![Thumb image](http://upload.wikimedia.org/wikipedia/commons/thumb/4/47/Imac_2007.png/320px-Imac_2007.png)
Stór hluti seldra heimilistölva hjá Apple hafa verið iMac-vélar síðan tegundin var kynnt 1998. Þrjár meginútgáfur hafa verið af vélinni. G3 var egglaga með túbuskjá (CRT). G4 var á nokkurs konar lampastandi með flötum kristalskjá á sveigjanlegum armi. Í G5 var tölvunni sjálfri komið fyrir á bakvið skjáinn sem aðeins er hægt að hreyfa upp og niður á einföldum standi. Þegar intel-örgjörvar voru innleiddir í Macintosh hélst G5 hönnunin um sinn en í ágúst 2007 var hún uppfærð þannig að kassinn er nú úr áli og glerplata þekur framhlið tölvunnar.