From Wikipedia, the free encyclopedia
Hvítá í Árnessýslu er jökulá sem á upptök sín í Hvítárvatni, skammt fyrir ofan Bláfell, undir Langjökli.
Hvítá (Árnessýslu) | |
---|---|
Staðsetning | |
Land | Ísland |
Einkenni | |
Uppspretta | Hvítárvatn |
Hnit | 64°12′49″N 20°17′22″V |
Árós | |
• staðsetning | hjá Óseyrartanga (sem Ölfusá) |
Lengd | 185 km |
Vatnasvið | 1644 km2 |
Rennsli | |
• miðlungs | 100 m3/sec |
breyta upplýsingum |
Hvítá er þriðja lengsta á landsins, ef lengd Ölfusár er lögð við hana samtals 185 km. Meðalrennsli Hvítár við Gullfoss, einn frægasta foss landsins, er 100 m³/s. en í flóðum getur vatnsmagnið allt að tuttugufaldast. Við Öndverðarnes rennur áin saman við Sogið og myndar Ölfusá. Brýr eru á Hvítá við Laugarás (1958), Flúðir (2010), Brúarhlöð (1906) og norðan Bláfells á Kili (1935[1]).
Á söndunum fyrir austan Bláfell fellur Jökulfall (Jökulkvísl) í Hvítá, en það á upptök undir Hofsjökli og í Kerlingarfjöllum. Áður en Hvítá steypist fram af hálendisbrúninni í Gullfoss, bætast enn nokkrar ár í Hvítá, bæði að austan og utan. Ákveðið hefur að virkja hana ekki fyrir vatnsafli.
Á Hvítá er hægt að fara í flúðasiglingar og eru einnig seld veiðileyfi í ána.
Seamless Wikipedia browsing. On steroids.
Every time you click a link to Wikipedia, Wiktionary or Wikiquote in your browser's search results, it will show the modern Wikiwand interface.
Wikiwand extension is a five stars, simple, with minimum permission required to keep your browsing private, safe and transparent.