![cover image](https://wikiwandv2-19431.kxcdn.com/_next/image?url=https://upload.wikimedia.org/wikipedia/commons/thumb/0/01/Pahoeoe_fountain_original.jpg/640px-Pahoeoe_fountain_original.jpg&w=640&q=50)
Hraun
From Wikipedia, the free encyclopedia
Hraun er bráðið berg eða möttulefni sem flæðir upp á yfirborð jarðar við eldgos og storknar þar. Hitastig hraunbráðar getur verið frá 700 - 1200 °C. Kvikan verður til vegna hitamyndunar í iðrum jarðar sem einkum stafar af niðurbroti geislavirkra efna (t.d. úrans og þóríums). Kvikan er heit og því eðlisléttari en umhverfið, sem veldur því að hún tekur að stíga í átt til yfirborðs þar sem hún kemur upp í eldgosum. Hraunið sem rennur þá inniheldur minna af uppleystum efnum (gösum) en kvikan.
![Thumb image](http://upload.wikimedia.org/wikipedia/commons/thumb/0/01/Pahoeoe_fountain_original.jpg/640px-Pahoeoe_fountain_original.jpg)
![](http://upload.wikimedia.org/wikipedia/commons/thumb/4/4a/Commons-logo.svg/30px-Commons-logo.svg.png)
Wikimedia Commons er með margmiðlunarefni sem tengist Hraun.
Sjá aðgreiningarsíðuna fyrir yfirlit yfir aðrar merkingar „Hraun“