Hrafn Gunnlaugsson
íslenskur kvikmyndagerðarmaður / From Wikipedia, the free encyclopedia
Hrafn Gunnlaugsson (fæddur 17. júní 1948 í Reykjavík) er íslenskur kvikmyndaleikstjóri og rithöfundur. Hann er sonur Gunnlaugs Þórðarsonar hæstaréttarlögmanns (f. 14. apríl 1919, d. 20. maí 1998) og Herdísar Þorvaldsdóttur leikkonu (f. 15. október 1923, d. 2013). Kona hans er Edda Kristjánsdóttir og eiga þau fjögur börn. Systir Hrafns er Tinna Gunnlaugsdóttir, leikkona og fyrrverandi Þjóðleikhússtjóri.