Hildegard von Bingen
Þýsk abbadís af Benediktsreglu, tónskáld og rithöfundur (um 1098–1179) / From Wikipedia, the free encyclopedia
Hildegard von Bingen (íslenska: Hildigerður frá Bingen) (16. september 1098 – 17. september 1179) var abbadís af Benediktsreglu, dulspekingur, rithöfundur og tónskáld frá Rínarlöndum í hinu Heilaga rómverska keisaradæmi. Hún þótti framúrskarandi predikari og skrifaði bækur sem fjalla um guðfræði, læknisfræði og lífeðlisfræði. Hún skildi eftir sig níu bækur, yfir hundrað bréf, 72 lög og 70 ljóð. Hún var einnig sterkur leiðtogi kvenþjóðarinnar til jafnréttis.