![cover image](https://wikiwandv2-19431.kxcdn.com/_next/image?url=https://upload.wikimedia.org/wikipedia/commons/thumb/1/1e/Hargcity.jpg/640px-Hargcity.jpg&w=640&q=50)
Hargeisa
From Wikipedia, the free encyclopedia
Hargeisa (sómalska: Hargeysa; arabíska: رجيسا, „litla Harar“) er borg í sómalska héraðinu Woqooyi Galbeed. Hún er höfuðborg sjálfstæða landshlutans Sómalílands. Borgin er önnur stærsta borg Sómalíu á eftir Mógadisjú með yfir milljón íbúa. Borgin situr í dal í Ógófjöllum og er í 1.334 metra hæð yfir sjávarmáli. Nánar tiltekið á 9° norðlægrar breiddar og 44° austlægrar lengdar. Atvinnulíf í Hargeisa er byggt upp í kringum fjárhagsleg viðskipti fyrir iðn- og nýsköpunarfyrirtæki af margvíslegum toga. Árið 2012 var þar kynning á fjarfestingasjóði sem er hluti af stærri efnahagsáætlun.
![Thumb image](http://upload.wikimedia.org/wikipedia/commons/thumb/1/1e/Hargcity.jpg/640px-Hargcity.jpg)