From Wikipedia, the free encyclopedia
HMS Hood var 48.000 lesta orrustubeitiskip breska flotans. Kjölurinn var lagður 1916 hjá John Brown & Co skipasmíðastöðinni í Skotlandi, en skipinu var hleypt af stokkunum 1918. Það var tekið í notkun af breska flotanum 1920, þá 42.000 tonn og stærsta herskip Breta. HMS Hood tók þátt í leitinni að Bismarck í seinni heimsstyrjöldinni ásamt orrustuskipinu Prince of Wales, en var sökkt að morgni 24. maí 1941 eftir snarpa sjóorustu við Bismarck og Prins Eugen vestur af Íslandi. Aðeins þrír af 1421 sjóliðum komust lífs af. Hood var stærsta orrustuskip sem sökkt var við Íslandsstrendur í síðari heimsstyrjöldinni.
Seamless Wikipedia browsing. On steroids.
Every time you click a link to Wikipedia, Wiktionary or Wikiquote in your browser's search results, it will show the modern Wikiwand interface.
Wikiwand extension is a five stars, simple, with minimum permission required to keep your browsing private, safe and transparent.