Hæstiréttur Íslands
æðsti dómstóll þriggja dómsstiga á Íslandi / From Wikipedia, the free encyclopedia
Hæstiréttur Íslands er æðsti dómstóll Íslands af þremur dómsstigum, þar sem Landsréttur og Héraðsdómstólarnir eru lægri. Átta dómarar sitja í dómstólnum og eru skipaðir af forseta Íslands samkvæmt tillögum dómsmálaráðherra. Dómstólalög kveða á um að við dómstólinn skuli eiga sæti sjö dómarar en við breytinguna á dómstólaskipan er átti sér stað í upphafi ársins 2018 var ákveðið að fækka reglulegum dómurum réttarins úr níu niður í sjö, án þess þó að víkja sitjandi dómurum. Dómstóllinn er ekki nefndur á nafn í stjórnarskránni en um hann gilda lög um dómstóla nr. 50/2016. Aðsetur Hæstarétts er við Lindargötu 2 í Reykjavík, í húsi sem var sérstaklega byggt fyrir starfsemi hans og tekið í notkun 1996.