íslenskur myndlistarmaður From Wikipedia, the free encyclopedia
Gunnhildur Hauksdóttir (f. Reykjavík 1972) er íslenskur myndlistarmaður. Hún nam myndlist við Listaháskóla Íslands og fékk þaðan BFA gráðu árið 2001. Þaðan lá leið hennar til Amsterdam í Hollandi en þar tók hún MFA gráðu sína í myndlist árið 2005. Hún hefur búið og starfað í Berlín, Þýskalandi en er nú búsett í Reykjavík og starfar þar að myndlist sinni. Faðir Gunnhildar er Haukur Halldórsson listamaður og móðir hennar er Sigrún Kristjánsdóttir, sjúkraliði. Sonur Gunnhildar er Matthías Tryggvi Haraldsson, leikskáld[1] og liðsmaður hljómsveitarinnar Hatari.
Gunnhildur hefur sýnt víða og alþjóðlega, þar með talið á Feneyjatvíæringinum árið 2016 á Collateral Event sem hét Silver Lining[2] með verkið Abstand. Hún sýndi verkið Samsæti heilagra í samvinnu við Bryndísi Hrönn Ragnarsdóttur m.a. í Listasafni Íslands (Listasafn Íslands, IS 2013). Sýningarnar Stars (Context Gallery Geymt 13 maí 2021 í Wayback Machine, IR 2011) Gjöf mín, yðar hátign (Listasafn Así, IS 2011), Audition (Ace Art Inc CA 2008) vann hún í samvinnu við Kristínu Ómarsdóttur rithöfund, Útúrdúr útgáfa gaf út bók[3] um samstarfið. Hún hefur tekið þátt í fjölda alþjóðlegra samsýninga og vinnur jöfnum höndum í þrívíða miðla, myndband og hljóð, auk þess sem hún gerir gjörninga og blandar þessum miðlum saman í innsetningar sínar.
Gunnhildur situr í stjórn Safnasafnsins og hún sat í stjórn Nýlistasafnsins frá 2010-2014 og veitti formennsku í fjögur ár. Gunnhildur er stundakennari við Listaháskóla Íslands, hún hefur átt sæti í listrænni stjórn Sequences listahátíðarinnar 2011 og hefur haft umsjón með fyrirlestraröðum á vegum hátíðarinar í samvinnu við Listaháskóla Íslands, hefur skipulagt málþingið Archive on the Run og ristýrt samnefndri bók á vegum Nýistasafnsins og fyrirlestraröð þýska heimspekingsins Marcus Steinweg um samband myndlistar og heimspeki í samvinnu við Félag áhugamanna um heimspeki, Listfræðifélagið, Nýlistasafnið og Listaháskóla Íslands. Þá hefur hún átt sæti í ritnendum, m.a. ristýrði hún og átti framlag í Archive on the Run og Grasrót VI, Hún hefur átt sæti í nefndum, skipulagt fyrirlestra, málþing, sýningar og gjörninga.
Seamless Wikipedia browsing. On steroids.
Every time you click a link to Wikipedia, Wiktionary or Wikiquote in your browser's search results, it will show the modern Wikiwand interface.
Wikiwand extension is a five stars, simple, with minimum permission required to keep your browsing private, safe and transparent.