Gullljónið
aðalverðlaun Kvikmyndahátíðarinnar í Feneyjum / From Wikipedia, the free encyclopedia
Gullljónið (ítalska: Leone d'oro) eru aðalverðlaun Kvikmyndahátíðarinnar í Feneyjum. Verðlaunin, sem veitt eru kvikmynd í fullri lengd, voru fyrst veitt árið 1949 og eru nú talin ein virtustu verðlaun kvikmyndaiðnaðarins. Árið 1970 voru verðlaunin Gullljón fyrir æviafrek tekin upp og eru það heiðursverðlaun fyrir fólk sem hefur lagt mikilvægt framlag til kvikmynda.