![cover image](https://wikiwandv2-19431.kxcdn.com/_next/image?url=https://upload.wikimedia.org/wikipedia/commons/thumb/c/cb/Automobile_exhaust_gas.jpg/640px-Automobile_exhaust_gas.jpg&w=640&q=50)
Gróðurhúsalofttegund
From Wikipedia, the free encyclopedia
Gróðurhúsalofttegund er lofttegund í lofthjúpi sem drekkur í sig og gefur frá sér innrauða geislun. Þetta ferli er meginástæða gróðurhúsaáhrifa. Helstu gróðurhúsalofttegundirnar í lofthjúpi jarðar eru vatnsgufa, koldíoxíð, metan, tvíköfnunarefnisoxíð og óson. Án gróðurhúsalofttegunda væri meðalhiti yfirborðs jarðar −18 °C, í stað núverandi meðaltals sem er 15 °C. Í sólkerfinu, eru Venus, Mars og Títan einnig með lofthjúp sem veldur gróðurhúsaáhrifum.
![Thumb image](http://upload.wikimedia.org/wikipedia/commons/thumb/c/cb/Automobile_exhaust_gas.jpg/640px-Automobile_exhaust_gas.jpg)
Losun gróðurhúsalofttegunda stafar bæði af náttúrlegum þáttum eins og breytileika á sporbaugi við sól (e. orbital forcing) og eldgosum, og af athöfnum mannsins sem valda hlýnun jarðar. Helstu áhrif frá manninum sem stuðla að losun gróðurhúsalofttegunda eru bruni á jarðefnaeldsneyti, t.d. kolum, bensíni (og öðrum efnum unnum úr hráolíu) og jarðgasi (sem hefur þó minni áhrif en bensín) og vegna eyðingar skóga og landbúnaðar.