Gránufélagið var verslunarfélag á Norðurlandi. Það var stofnað 1870 í kringum rekstur á skonnortunni Gránu. Tryggvi Gunnarsson var kosinn kaupstjóri félagsins 1871. Árunum 1877-83 eignaðist Gránufélagið þrjú önnur skip og flutti 10-15 skipsfarma til Íslands og rak eina stærstu verslun á Íslandi.

Thumb
Grána, sem Gránufélagið var kennt við, á strandstað við eyjuna Ljóðhús (Ytri-Suðureyjar) árið 1896.

Fram að 1877 var ekkert flutt af saltfiski frá Norðurlandi til útlanda en þá hóf Gránufélagið að selja salt miklu ódýrara en áður og byggði salthús utarlega í fjörðum Norðanlands. Þetta varð til að auka saltfiskverkun og saltfiskútflutning frá Norðurlandi.

Thumb
Auglýsing frá Gránufélaginu 1897 sem birtist í tímaritinu Stefni.

Gránufélagið hóf gufubræðslu á hákarlalifur við Eyjafjörð. Það gekk hinsvegar illa um árið 1880 og danskur kaupmaður tók yfir rekstur þess.


  Þessi fyrirtækjagrein er stubbur. Þú getur hjálpað til með því að bæta við greinina.

Wikiwand in your browser!

Seamless Wikipedia browsing. On steroids.

Every time you click a link to Wikipedia, Wiktionary or Wikiquote in your browser's search results, it will show the modern Wikiwand interface.

Wikiwand extension is a five stars, simple, with minimum permission required to keep your browsing private, safe and transparent.