![cover image](https://wikiwandv2-19431.kxcdn.com/_next/image?url=https://upload.wikimedia.org/wikipedia/commons/thumb/a/ae/Tagliacozzi_Portrait.jpg/640px-Tagliacozzi_Portrait.jpg&w=640&q=50)
Gasparo Tagliacozzi
From Wikipedia, the free encyclopedia
Gaspare Tagliacozzi (mars 1545 – 7. nóvember 1599) var ítalskur skurðlæknir og brautryðjandi í lýtalækningum. Hann fæddist í Bologna og hóf nám í læknisfræði árið 1565 við Háskólann í Bologna. Árið 1568 hóf hann störf í Spítala dauðans en það var eins konar rannsóknarstofa sem stafrækt var af bræðralagi Dauðans en það félag fékkst við að heimsækja fangelsi og hughreysta þá sem höfðu verið dæmdir til dauða. Tagliacozzo náðu í gegnum þetta bræðalag í lík af föngum til að kryfja. Hann endurbætti verk sikileyska skurðlæknisins Gustavo Branca og sonar hans Antonio og þróaði svonefnda ítalska aðferð við endurgerð á nefjum. Aðalritverk hans er De Curtorum Chirurgia per Insitionem frá árinu 1597 en það fjallar um skinnágræðslur.
![Thumb image](http://upload.wikimedia.org/wikipedia/commons/thumb/9/9b/Houghton_Typ_525.97.820_-_De_curtorum_chirurgia_per_insitionem%2C_icon_octua_-_cropped.jpg/640px-Houghton_Typ_525.97.820_-_De_curtorum_chirurgia_per_insitionem%2C_icon_octua_-_cropped.jpg)
![Thumb image](http://upload.wikimedia.org/wikipedia/commons/thumb/a/ae/Tagliacozzi_Portrait.jpg/320px-Tagliacozzi_Portrait.jpg)