From Wikipedia, the free encyclopedia
Gamla bíó er fyrrverandi kvikmyndahús og núverandi óperuhús sem stendur við Ingólfsstræti í miðborg Reykjavíkur. Húsið var reist yfir starfsemi „gamla bíós“, Reykjavíkur Biograftheater, af Peter Petersen árið 1927 og tók við af Fjalakettinum. Petersen innréttaði íbúð fyrir sjálfan sig á efri hæð hússins. Fyrsta kvikmyndin sem var sýnd þar var Ben Húr með Ramon Novarro í aðalhlutverki 2. ágúst 1927. Upphaflega tók salurinn 602 í sæti en það minnkaði í 479 þegar húsinu var breytt og sviðið stækkað til að mæta þörfum óperunnar.
Húsið var rekið sem kvikmyndahús til ársins 1980 þegar Íslenska óperan keypti það undir óperusýningar. Fyrsta óperan sem var frumsýnd í húsinu var Sígaunabaróninn eftir Johann Strauss 9. janúar 1982. Húsið hefur oft hýst leiksýningar og tónleika auk óperusýninga.
Seamless Wikipedia browsing. On steroids.
Every time you click a link to Wikipedia, Wiktionary or Wikiquote in your browser's search results, it will show the modern Wikiwand interface.
Wikiwand extension is a five stars, simple, with minimum permission required to keep your browsing private, safe and transparent.