![cover image](https://wikiwandv2-19431.kxcdn.com/_next/image?url=https://upload.wikimedia.org/wikipedia/commons/thumb/3/30/Flying_mallard_duck_-_female.jpg/640px-Flying_mallard_duck_-_female.jpg&w=640&q=50)
Gásfuglar
From Wikipedia, the free encyclopedia
Gásfuglar (fræðiheiti: Anseriformes) eru ættbálkur fugla sem skiptast í þrjár ættir: hornagldaætt (Anhimidae), skjógæsaætt (Anseranatidae) og andaætt (Anatidae), sem inniheldur meðal annars gæsir, svani og endur.
Gásfuglar | ||||||||
---|---|---|---|---|---|---|---|---|
![]() Stokkönd á flugi. | ||||||||
Vísindaleg flokkun | ||||||||
| ||||||||
![]() Útbreiðsla gásfugla. | ||||||||
Ættir | ||||||||
Hópurinn er sérstaklega aðlagaður að lífi í eða við vatn, og deila því flestar tegundir einkennum á borð við sundfit á milli annarar og fjórðu tá. Flestar eru tegundirnar jurtaætur og/eða síarar, og sía smávægileg krabbadýr, dýra- og plöntusvif, úr vötnum, ám, tjörnum og jafnvel hafinu. Sumar tegundir þeirra á meðal æðarfuglinn (Somateria molissima) borða stærri bráð sem hún eltir uppi eins og stærri krabbadýr, snigla og skeldýr. Til marks um skuldbindingu þeirra við vatn er vert að athuga að endur, gæsir og álftir fella nær allar fjaðrir sínar samtímis, og kallast það að vera í sárum, sem gerir þær tímabundið ófleygar. Því eru þær bundnar vatni yfir fellitímann.
Tegundir innan þessa ættbálks má finna um heim allan í öllum heimsálfum, að Suðurskautslandi einu undanskildu.
Áhugavert einkenni hópsins er að flestar tegundir hans hafa getnaðarlim, sem megn fuglategunda hafa glatað.
Mjög ólíkt er á milli hópa hvernig uppeldi og ummönnun foreldra er háttað. Í gæsum og álftum eru báðir foreldrar sem sinna ungviði, en í öndum sjá kollurnar nær alfarið um uppeldi. Þrátt fyrir þetta virðast pör halda nokkuð vel saman milli ára. Sem afleiðing af þessu eru kollur og steggir (kvenkyns og karlkyns endur) nokkuð ólík í útliti. Kollurnar eru nokkuð dræmar, oftast gráar eða brúnar og falla því ágætlega inn í umhverfið sitt, á meðan steggirnir skara út úr umhverfinu. Þessi munur stafar af samblandi af náttúrulegu vali og kynjuðu vali. Í gæsum og svönum deila kynin þó útliti með mestu, en oftast er aðeins smávægilegur stærðarmunur ef einhver munur er yfirhöfuð. Þessi hópamunur stafar líklega sökum skiptingu foreldrahlutverka, og fylgjandi álagi, í mismunandi hópunum.