Friðarverðlaun Nóbels
From Wikipedia, the free encyclopedia
Friðarverðlaun Nóbels eða bara Friðarverðlaunin eru ein af þeim fimm verðlaunum sem sænski iðnjöfurinn Alfred Nobel stofnaði til með auðæfum sínum. Í erfðaskrá sinni kvað hann á um að friðarverðlaunin skyldi veita þeim sem gert hefði mest eða unnið best að bræðralagi þjóða, unnið að afvopnun og dregið úr hernaðarmætti og fyrir að standa fyrir og vinna að friðarráðstefnum.
Nánari upplýsingar Nóbelsverðlaunin ...
Loka
Friðarverðlaunin eru veitt af norska Stórþinginu, sem kýs sérstaka friðarverðlaunanefnd, sem aftur velur verðlaunaþegann. Hin Nóbelsverðlaunin sjá Svíar um.