Freðmýri
From Wikipedia, the free encyclopedia
Freðmýri eða túndra er heiti á nyrsta gróðurbelti jarðar, þar sem sífreri er við -1 °C. Þar er hiti of lágur og vaxtartími of stuttur til að tré geti dafnað. Orðið „túndra“ kemur úr samískri mállýsku og þýðir „trjálaus slétta“, en þó vaxa sums staðar tré í túndru. Mörkin á milli gróðurbelta freðmýrar og skóglendis eru kölluð skógarmörk (trjálína). Á túndru vaxa lágvaxnar jurtir eins og lágvaxnar víðitegundir, fjalldrapi, grös, starir, mosi og fléttur.
![Thumb image](http://upload.wikimedia.org/wikipedia/commons/thumb/4/4c/Wrangel_Island_tundra.jpg/640px-Wrangel_Island_tundra.jpg)
Sífreri freðmýranna getur mótað landslagið og lyft því upp og skapað freðmýrafyrirbæri eins og rústir og melatígla.