Frelsissamtök Palestínu
From Wikipedia, the free encyclopedia
Frelsissamtök Palestínu (PLO; arabíska: منظمة التحرير الفلسطينية; Munaẓẓamat at-Taḥrīr al-Filasṭīniyyah) eru palestínsk þjóðernishreyfing sem nýtur alþjóðlegrar viðurkenningar sem opinber fulltrúi palestínsku þjóðarinnar.
Frelsissamtök Palestínu منظمة التحرير الفلسطينية Munaẓẓamat at-Taḥrīr al-Filasṭīniyyah | |
---|---|
Skammstöfun | PLO |
Stofnun | 28. maí 1964; fyrir 59 árum (1964-05-28) |
Gerð | Stjórnmálahreyfing, hernaðarsamtök |
Markmið | Stofnun sjálfstæðs Palestínuríkis |
Höfuðstöðvar | Al-Bireh, Vesturbakkanum, Palestínuríki |
Forstöðumaður | Mahmúd Abbas |
Samtökin voru stofnuð árið 1964 og stefndu þá að stofnun arabísks ríkis á gervöllu yfirráðasvæði fyrrum umboðsstjórnar Breta í Palestínu og eftir því að Ísraelsríki yrði leyst upp. Frá fyrsta Óslóarsamkomulaginu árið 1993 hafa samtökin hins vegar viðurkennt fullveldi Ísraels og sækjast eingöngu eftir stofnun arabísks ríkis á palestínsku landsvæðunum (Vesturbakkanum og Gasaströndinni) sem Ísraelar hafa hernumið frá sex daga stríðinu 1967.
Fatah er stærsti stjórnmálaflokkurinn innan PLO. Leiðtogi bæði Fatah og PLO er Mahmúd Abbas, forseti palestínsku heimastjórnarinnar.