Forseti Írans
From Wikipedia, the free encyclopedia
Forseti Írans er stjórnarleiðtogi Írans. Hann er hæst setti stjórnmálamaður landsins sem er kjörinn í almennum kosningum en heyrir undir æðsta leiðtoga Írans sem er þjóðhöfðingi landsins. Forsetinn er yfirmaður framkvæmdavaldsins og hefur vald til að gera samninga við erlend ríki, sjá um fjármál ríkisins og ráðningar, og skipa ráðherra háð samþykki Íransþings. Æðsti leiðtoginn hefur samt bein áhrif á utanríkisstefnu, herinn og kjarnorkuáætlun landsins.
Forsetinn er kosinn til fjögurra ára í senn og má ekki sitja lengur samfellt en tvö kjörtímabil. Núverandi forseti er Ebrahim Raisi sem tók við embætti árið 2021.