Forseti
titill þjóðhöfðinga og æðsta embættismanns í lýðveldum / From Wikipedia, the free encyclopedia
Sjá aðgreiningarsíðuna fyrir yfirlit yfir aðrar merkingar „Forseti“
Forseti er titill sem æðstu menn í mörgum félagasamtökum, fyrirtækjum eða ríkjum bera. Völd forseta eru mjög misjöfn eftir ríkjum. Þar sem þingræði tíðkast eru þau yfirleitt frekar takmörkuð og embættið fyrst og fremst táknrænt en þar sem forsetaræði tíðkast eru þau mun meiri. Forsetaefni er haft um þann sem er í framboði til forseta.