From Wikipedia, the free encyclopedia
Fornleifar eru allt það sem varðveist hefur frá gamalli tíð,[1] meðal annars leifar fornra mannvirkja og annarra staðbundinna minja sem menn hafa gert eða mannaverk eru á en einnig hvers kyns manngerðir hlutir og verkfæri og átrúnaðarstaðir. Samkvæmt íslenskum lögum eru fornleifar eldri en 100 ára .[2]
Fornleifar geta meðal annars verið byggðaleifar, bæjarstæði, húsaleifar hvers kyns, svo sem kirkna, bænahúsa, klaustra og búða, leifar af verbúðum, naustum, verslunarstöðum og byggðaleifar í hellum; einnig vinnustaðir þar sem aflað var fanga, sel, verstöðvar, ból, mógrafir, kolagrafir, gömul tún- og akurgerði, áveitumannvirki og leifar eftir veiðar til sjávar og sveita, gamlir vegir, stíflur, brýr, vöð, varir, hafnir og bátalægi, slippir, ferjustaðir, kláfar, vörður og vitar og önnur vega- og siglingamerki ásamt kennileitum þeirra; varnarmannvirki; þingstaðir, hörgar, hof og vé, brunnar, uppsprettur, álagablettir og aðrir staðir og kennileiti sem tengjast siðum, venjum, þjóðtrú eða þjóðsagnahefð; áletranir, greftrunarstaðir og skipsflök.
Fornleifar eru ekki aðeins öll forn mannvirki heldur einnig staðir sem á einn eða annan hátt tengjast menningu og atvinnuvegum.
Seamless Wikipedia browsing. On steroids.
Every time you click a link to Wikipedia, Wiktionary or Wikiquote in your browser's search results, it will show the modern Wikiwand interface.
Wikiwand extension is a five stars, simple, with minimum permission required to keep your browsing private, safe and transparent.